FRÉTTIR
MYNDIR
TENGLAR
Forsíða
Stofan
Náttúran
Verkefni
Fréttir
Myndir
Olíusmitaðir fuglar á Rosmhvalanesi
27. febrúar 2007
Laugardaginn 17. febrúar fékk NR ábendingu frá kennurum og nemendum í fuglafræði við HÍ að tugir olíublautra fugla væru í Garði. Starfsmaður NR fór á svæðið samdægurs og kannaði gróflega strandlengjuna frá Hvalsnesi austur í Voga á Vatnsleysuströnd. Olíusmitaðir fuglar sáust frá Garðskaga og inn í Njarðvíkurfitjar. Mest sást af olíusmituðum hettumáfum (um 150) en einnig sást nokkuð af æður (um 40) og bjartmáf (15). Þá sáust olíusmitaðir fuglar af sjö öðrum tegundum.
Þeir rúmlega 200 fuglar sem sáust með olíusmit á laugardaginn gefa algjöra lágmarks tölu um fjölda þeirra fugla sem hefur fengið olíu á haminn. Mjög erfitt er að greina olíu á ham fuglanna sé hann dökkur. Nær engar æðarkollur eða skarfar sáust með olíusmit en fjöldinn allur af þessum tegundum eyddi miklum tíma í að snyrta sig.
Á síðustu dögum hefur minna sést af olíusmituðum fuglum á þessu svæði. Ástæða þess gæti tengst veðurbreytingum og einnig er mögulegt að loðnan sé komin inn á svæðið. Fjórir æðarfuglar hafa komist undir manna hendur, tveir lifandi og tveir dauðir. Bliki og kolla sem fundust lifandi en ófleyg í Garði á mánudag (19. feb) voru send í Húsdýragarðinn. Kollan hafði olíu á hálsi og gumphliðum en engin sjáanleg olía var á blikanum. Dauð olíublaut kolla fannst í olíumettuðu þangi við strandstað Wilson Muuga á þriðjudag (20. feb) og dauður bliki fannst norðan við Gerðasíki í Garði í gær (21. feb). Sá hafði olíu á bringu og axlarfjöðrum.
NR mun vakta fuglalíf á svæðinu og athuga hvort breytingar verði á fjölda fugla með olíusmit í fjöðrum.
Til baka
Veðrið á Keflavíkurflugvelli