FRÉTTIR
MYNDIR
TENGLAR
Forsíða
Stofan
Náttúran
Verkefni
Fréttir
Myndir
Fundargerð SNS 2006
27. nóvember 2006
Aðalfundur SNS 2006 – fundargerð
Aðalfundur SNS haldinn að Bakkaflöt í Skagafirði, laugardaginn 30. september 2006. Sveinn Kári Valdimarsson formaður SNS bauð fundarmenn velkomna og stakk upp á Þorleifi Eiríkssyni sem fundarstjóra og Aðalsteini Erni Snæþórssyni sem fundarritara. Þetta var samþykkt og tók þá Þorleifur við fundarstjórn.
Þorleifur las upp dagskrá aðalfundar og bað um athugasemdir. Engar athugasemdir voru gerðar og því gengið til dagskrár.
1. mál. Skýrsla stjórnar.
Sveinn Kári Valdimarsson flutti skýrslu stjórnar. Fram kom að ársþing séu orðin stærsti liðurinn í starfsemi SNS og að stjórnin hafið haldið tvo fundi á starfsárinu. Reynt var að gera samning við seljendur útivistarfatnaðar um kaup á fatnaði handa starfsfólki náttúrustofanna. Í ljós kom að hentugast er að hver náttúrustofa sjái sjálf um að óska eftir tilboðum í fatnað handa sínum starfsmönnum. Stjórn var einnig falið að koma af stað lista eða nokkurskonar tækjabanka, þar sem hver stofa teldi upp þau tæki, þá aðstöðu og þá tækni sem þar væri til staðar og líklegt að gæti nýst öðrum stofum. Af þessu hefur ekki orðið vegna þess að upplýsingar hafa ekki borist frá stofunum. Í desember sl. var auglýst eftir aðila innana stofanna til að sjá um heimasíðu SNS en enn hefur enginn sýnt því áhuga. Stjórnin hafnar hugmyndum um að taka upp árgjöld sem henni var falið að taka afstöðu til. Helstu verkefni framundan eru að koma á fundi með fulltrúum Umhverfisráðuneytis, Umhverfisstofnunar og Náttúrufræðistofnunar.
2. mál. Afgreiðsla reikninga.
Þorleifur Eiríksson lagði fram ársreikninga samtakanna fyrir starfstímabilið 20.10.2005 til 27.09.2006. Þeir hafa ekki verið samþykktir af endurskoðendum þar sem eitthvað vantar af gögnum. Fram kemur í ársreikningum að tekjur ársins hafi numið 438.684 kr. og gjöld sömu leiðis 438.684 kr. Rekstrarniðurstaða var því 0 kr. Sú regla var höfð að reikningar sem bárust var deilt niður á náttúrustofur og því var ekki um mikla fjármálaumsýslu að ræða. Reikningar voru bornir undir atkvæði og samþykktir samhljóða.
3. mál. Lagabreytingar.
Tillaga barst um að reikningsárið skuli vera almanaksárið en ekki tímabilið milli aðalfunda. Tillagan var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum.
4. mál. Skipun stjórnar.
Stjórnin leggur til að inn í stjórn komi Þorkell Lindberg Þórarinsson í stað Ingvars A. Sigurðssonar og að Guðrún Á. Jónsdóttir verði formaður næsta árið. Stjórn skipar með sér verkum að öðru leyti. Þetta var samþykkt með lófataki.
5. mál. Skipun í vinnuhópa.
Samstarfshópur við NÍ. Í þessum hópi voru þeir Róbert og Þorsteinn. Reynt var að koma á fundi við NÍ en ekki tókst og var ástæðan tímaskortur. Stungið var upp á að þeir Róbert og Þorsteinn héldu áfram í þessum vinnuhóp og var það samþykkt.
Samstarfshópur við Umhverfisstofnun. Í þessum hópi voru Þorleifur og Ingvar. Engir fundir voru haldnir á starfsárinu og ekki reynt að halda fund en þó voru mál eitthvað rædd óformlega við UST. Tillaga kom upp um að sömu menn héldu áfram í þessum vinnuhópi og var það samþykkt.
Vinnuhópur um ársþing. Í þessum hópi eru þeir Þorsteinn, Þorleifur og Þorkell Lindberg. Rætt hefur verið um að halda stóra faglega ráðstefnu í tengslum við ársþing. Þorstinn kom með þá tillögu að hafa faglega ráðstefnu ekki með ársþingi og var það samþykkt. Tillaga var gerð um að Þorsteinn, Þorleifur og Róbert verði í vinnuhópnum næsta árið. Það var samþykkt. Sveinn Kári lagði til að hann ásamt Þorsteini myndu finna tíma fyrir stóra ráðstefnu og var það samþykkt.
6. mál. Kosning skoðunarmanna reikninga.
Lagt var til að sömu skoðunarmenn myndu halda áfram og var það samþykkt.
7. mál. Ákvörðum um árgjald og/eða önnur framlög.
Þorleifur kom með þá tillögu að það væri fast árgjald sem væri 100 þús. kr. á hverja náttúrustofu til að gefa stjórninni frjálsari hendur í vinnu sinni. Fjármagnið yrði notað fyrir útlagðan kostnað ekki vinnu. Guðrún kom með nýja tillögu sem segir að ekki verði neitt fast árgjald heldur verði greitt fyrir nefndarfundi eftir á og að kostnaðinum verði deilt niður á náttúrustofurnar. Samþykki formans þarf að vera fyrir þessum fundum til að kostnaður vegna þeirra fáist greiddur. Seinni tillagan var borin upp með 5 atkvæðum og tveir sátu hjá.
8. Önnur mál.
a) Samstarfssamningur milli SNS og Stofnun fræðasetra. Sveinn Kári greindi frá samningnum sem búið var að senda öllum forstöðumönnum. Samningurinn var samþykktur samhljóða og verður undirritaður seinna í dag.
b) Ályktun um Stefnumótunarvinnu:
Aðalfundur SNS leggur til að farið verið í stefnumótunarvinnu með það að markmiði að skilgreina með skýrum hætti stöðu, hlutverk og skyldur náttúrustofa gagnvart samfélaginu og skilgreina framtíðarsýn og tækifæri á þeim grundvelli.
Aðalfundur SNS hvetur því stjórnir náttúrustofa að styðja við ákvörðun aðalfundar um mikilvægi þessarar vinnu því með skýrari framtíðarsýn eru náttúrustofurnar líklegri til að ná fram þeim markmiðum sem skilgreind eru í lögum um náttúrustofur.
Aðalfundur SNS minnir á að í lok árs 2007 verða rekstrarsamningar milli Umhverfisráðuneytis og þeirra sveitarfélaga sem standa að rekstri náttúrustofa endurskoðaðir. Á þeim tímapunkti telur aðalfundur SNS mikilvægt að þessari vinnu sé lokið.
Ályktunin var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum.
c) Ályktun um náttúrufarsskráningu á lítt kunnum svæðum.
Aðalfundur SNS haldinn á bakkaflöt í Skagafirði 30. september 2006 leggur til að árlega sameinist náttúrustofurnar um náttúruskráningu á lítt kunnum svæðum. Stofurnar skipist á um að velja slík svæði og ríður Náttúrustofa Vestfjarða fyrst á vaðið en síðan farið réttsælis um landið. Kynna skal val svæðis á aðalfundi SNS ár hvert.
Eitt aðal hlutverk náttúrstofa er að safna og skrá upplýsingar um náttúru þess svæðis sem stofan starfar á. Sameiginleg náttúruskráning eflir samstarf náttúrustofanna og eykur færni starfsmanna auk þess að gera þær sýnilegri. Skipuleggjandi ritstýrir verkefnisstjórum sem skrásetja niðurstöður. Þær skal birta innan árs frá skráningu. Viðkomandi náttúrustofa skipar verkefnisstjóra með:
1. Jarðfræði
2. Fuglum
3. Skordýrum
4. Háplöntum
5. Lágplöntum
6. Fornminjum
Verkefnisstjórar skipuleggja aðferðir við skráningu og söfnun. Umsjónarmaður viðkomandi náttúrustofu og verkefnisstjórar skulu kynna dagskrá og verkefni eigi síðar en í marslok ár hvert.
Ályktunin var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum.
d) Ályktun um fyrirlestraröð náttúrustofanna.
Aðalfundur SNS leggur til við stjórn SNS og einstakar stofur að komið verði á fót fyrirlestraröð í fjarfundabúnaði þar sem starfsfólk náttúrustofanna kynnir viðfangsefni sín hvert fyrir öðru. Jafnframt verði almenningi boðin þátttaka í slíkum fyrirlestrum.
Tillagan samþykkt með öllum greiddum atkvæðum.
e) Ályktun um póstlista starfsmanna.
Aðalfundur SNS leggur til að stofnaður verði póstlisti starfsmanna náttúrustofanna. Böðvar Þórisson frá Náttúrustofu Vestfjarða hefur boðist til að taka það að sér.
Ályktunin samþykkt samhljóða.
f) Ályktun um kynningarbækling.
Aðalfundur Samtaka náttúrustofa (SNS) telur brýnt að náttúrustofurnar verði sýnilegri í íslensku samfélagi. Liður í því er að koma á framfæri frambærilegu kynningarefni. Aðalfundurinn ályktar að stefnt skuli hið fyrsta að gerð bæklings um öfluga starfsemi náttúrustofa, sem dreift yrði til sveitarstjórna, fjölmiðla o.fl. Stjórn mun í samráði við einstakar náttúrustofur eftir atvikum skilgreina innihald slíks bækling. Kostnaðaráætlun verður lögð fyrir forstöðumenn til samþykktar.
g) Ályktun um vöktun mófugla.
Aðalfundur SNS leggur til að náttúrustofurnar hefji samstarfsverkefni um vöktun mófuglastofna og styður hugmyndir starfsmanna um verkstæðisvinnu mófuglanefndar í mars 2007.
Ályktun samþykkt samhljóða.
Fleira ekki fært til bókar og fundi slitið.
Til baka
Veðrið á Keflavíkurflugvelli