FRÉTTIR
MYNDIR
TENGLAR
Forsíða
Stofan
Náttúran
Verkefni
Fréttir
Myndir
Kortlagning fjörugerða á Reykjanesi
25. september 2006
Fjörur á Reykjanesi eru fjölbreyttar hvað varðar fjörugerð og tegundasamsetningu. Í fjörum er lífríki á mótum lands og sjávar viðkvæmt fyrir skakkaföllum.
Við skipulag strandsvæða s.s. vegna byggðar, útivistar, verndar og annarrar notkunar eins og kennslu, er nauðsynlegt að þekkja viðkomandi svæði vel. Kortlagning fjörugerða og tegundasamsetningar í fjörum á Reykjanesi verður þá ómetanlegur grunnur sem auðveldar allt slíkt starf til muna. Að auki er þessi vinna mikilvæg hvað varðar siglingar og varnir gegn mengun stranda (sbr. Lög um varnir gegn mengun hafs og stranda, nr. 33, 7.maí 2004).
Þetta verkefni er gert í góðu samstarfi við Háskóla Íslands og til stendur að styðjast við flokkunarkerfi Prófessors Agnars Ingólfssonar og aðferð sem notuð hefur verið á Bretlandseyjum af Joint Nature Conservation Committee (JNCC).
Safna á upplýsingum í sérstakan kortagrunn og að auki verður eftir fremsta megni bætti inn upplýsingum sem nú þegar eru til.
Má segja að þetta sé að vissu leiti frumkvöðlastarf þar sem slíkt hefur ekki verið gert með skipulögðum hætti áður á Íslandi, þar af leiðandi er nauðsynlegt að vanda vel til undirbúnings vinnunnar.
Til baka
Veðrið á Keflavíkurflugvelli