FRÉTTIR
MYNDIR
TENGLAR
Forsíða
Stofan
Náttúran
Verkefni
Fréttir
Myndir
Sjófuglatalningar
30. júlí 2006
Um miðjan júlí töldu starfsmenn náttúrustofunnar undir stjórn Arnþórs Garðarssonar prófessors, fugla í björgum í og við Reykjanesið.
Fyrst var siglt með báti Háskóla Íslands, Sæmundi Fróða út í Eldey. Skipstjórinn var Halldór Pálmar Halldórsson doktorsnemi Háskólaseturs í Sandgerði. Töluvert var af stálpuðum súluungum (Morus bassanus) í eynni en aðalmarkmið ferðarinnar út í eyjuna var að kanna fjölda stuttnefja (Uria lomvia) í bjarginu. Mjög lítið reyndist vera af henni.
Eins var talið í Hafnarbergi, Festafjalli og á Reykjanestá, allsstaðar reyndist vera lítið af stuttnefju og einnig var áberandi slakur varpárangur ritu (Rissa tridactyla) en aðeins örfáar þeirra voru á hreiðrum og enn færri með unga.
Til baka
Veðrið á Keflavíkurflugvelli