FRÉTTIR
MYNDIR
TENGLAR
Forsíða
Stofan
Náttúran
Verkefni
Fréttir
Myndir
Hvalreki
26. júlí 2006
Í júníbyrjun gengu starfsmenn Náttúrustofu Reykjaness þau Hálfdán H. Helgason og Elínborg Pálsdóttir fram á dauðan höfrung í flæðarmálinu milli Garðsskaga og Sandgerðis. Tekið var sýni og hræið mælt.
Í ljós kom að þarna hafði kú með kálf fastan í fæðingarveginum strandað. Þegar höfrungakýr líkt og allir aðrir hvalir bera, gengur fæðingin yfirleitt mjög hratt fyrir sig svo að kálfurinn komist fljótt upp á yfirborðið til að anda. Ástæðan fyrir því að þessi burður misfórst var sú að kálfurinn kom öfugur út, þ.e. hann kom með höfuðið á undan. Hann hefur því drukknað mjög fljótlega og kýrin líklega ekki haft orku til að komast á yfirborðið til að anda og þess vegna drukknað líka.
Þetta var hnýðingur (Lagenorhynchus albirostris) en það er algengasta höfrungategundin við Ísland en alls má finna um fimm tegundir í hafinu hér í kring.
Kálfurinn reyndist vera karlkyns u.þ.b. 120 cm á lengdina en móðirin var u.þ.b 260 cm.
Bein kálfsins o.fl. hafa verið tekin til hreinsunar og verða vonandi til sýnis á safni Fræðasetursins sem er í sama húsi og Náttúrustofa Reykjaness.
Þegar beinunum var komið fyrir í höfninni í Sandgerði til hreinsunar fannst annar dauður hvalur. Það var hnísutarfur u.þ.b. 170 cm á lengd sem að öllum líkindum hefur ekki legið lengi í höfninni. Ekki er ljóst hvernig hann dó en þó er ekki ólíklegt að hann hafi fest sig í neti og drukknað. Hvalir lenda því miður alltof oft í veiðarfærum sjómanna og sem dæmi um það má nefna á höfrungakúnni var öngull og fiskilína föst í sporðinum.
Til baka
Veðrið á Keflavíkurflugvelli