Ranasvarmi
15. maí 2006
Í ágúst 2005 fengum við dökkbrúna lirfu í hendurnar. Hún var vel spræk og hreyfði sig mikið. Farið var strax í að finna út hvaða tegund þetta væri. Mikið var rætt og margar bækur skoðaðar. Í ljós kom að þetta væri að öllum líkindum elephant hawk moth og fljótlega púpaði hún sig. Púpan var því sett í fiskabúr með mold og laufblöðum sem hún át en lagðist svo í dvala. Hún var því færð á kaldan stað og ekkert var gert, gjörsamlega ekkert í 8 mánuði. Lengi vel leit allt út fyrir að lirfan væri bara dauð og allt í búrinu með henni. En núna í maí kom þetta líka fallega fiðrildi í ljós. Það er ekki kraftmikið enda dó það fljótlega eftir umbreytingu. Þetta er í fyrsta skipti sem svona fiðrildi sést hér á landi og því fékk það íslenska nafnið Ranasvarmi.

Til baka
Veðrið á Keflavíkurflugvelli