Aðalfundur SNS
7. nóvember 2005
Gríðarleg fagnaðarlæti brutust út á aðalfundi SNS sem haldinn var á Húsavík föstudaginn 4 nóvember, þegar ljóst var að Sveinn Kári Valdimarsson hafði unnið æsispennandi kosningar um stöðu formanns SNS. Fráfarandi formanni var þökkuð góð og dygg störf í þágu samtakanna og nýr formaður Sveinn Kári Valdimarsson boðinn velkominn.
Mikil spenna ríkti á fundinum fyrir formannskjörin og líklega má segja að kosningaloforð Sveins um að ná góðum samningum við 66°N hafi ráðið úrslitum. Starfsmenn og forstöðumenn eru hvattir til að vera vakandi yfir því hvort hann efni ekki loforðin.

Þó má segja að stjörnur fundarins hafi verið starfsmennirnir, þeir komu, sáu og sigruðu með líflegum fundi sínum sem haldinn var á sama tíma og leynifundur forstöðumanna.
Afrakstur þeirra fundar var ríkulegur enda teygðist allvel úr aðalfundinum undir liðnum önnur mál þegar málefni starfsmanna voru rædd og samþykkt.

Í kjölfar aðalfundar var haldið Náttúrustofuþing þar sem valin kunnum einstaklingum var boðið. Umhverfisráðherra Sigríður Anna Þórðardóttir flutti ávarp og dásamaði starfsemi náttúrustofanna. Anna G. Edvardsdóttir frá Náttúrustofu Vestfjarða sýndi frammá að Náttúrustofur væru í raun klasar og því fengi rekstur stofanna aðra vídd.
Sigþrúður Stella Jóhannsdóttir þjóðgarðsvörður í Jökulsárgljúfrum kom með fræðandi upplýsingar um vöktun og markmið þjóðgarðarins. Síðan kom Ólafur Karl Nielsen með nýjustu upplýsingar um ástand rjúpunnar sem lofaði því miður ekki góðu.

Miklar fyrirspurnir voru og umræður. Fólk virtist almennt afar ánægt með bæði aðalfundinn, aukafundinn og þingið. Og þá ætti tilganginum að vera náð.

Til baka
Veðrið á Keflavíkurflugvelli