Máfarannsóknum lokið sumarið 2005
6. október 2005
Eins og áður hefur komið fram þá voru 2 vísindamenn, frá Kóreu og Skotlandi starfandi á Náttúrustofunni við rannsóknir á máfum nú í sumar.
Rannsóknin gekk útá að skoða tengls vaxtar og og aldurs hjá sílamáfum. Líkur eru á að því hraðar sem máfarnir vaxa úr grasi því styttri lífaldur hafa þeir. Skoðaður var partur af DNA sem kallast “telomere” litningsendi.

Þessi litningsendi minnkar eftir því sem máfurinn eldist. Teknar voru blóðprufur hjá máfa ungum sem voru innan við 20 daga gamlir og sendar á Rannsóknarstofu Háskólans í Glasgow. Þannig var hægt að áætla hve hratt litningsendinn minnkaði og þar af leiðandi hve langan líftíma máfurinn hefði. Með því að bera saman hve hratt litningsendinn minnkaði við vöxt unganna var hægt að sjá tengsl milli vaxtar og öldrunar. Búist var við að þeir ungar sem tóku hraðasta vaxtakippinn myndu einnig hafa litningsenda sem minnkaði hraðast. Því miður þá var ungadauðinn mjög mikill á þessu ári á því svæði sem rannsakað var. Þar af leiðandi eru marktæk gögn ekki eins mikil og væntingar stóðu til um.

Til baka
Veðrið á Keflavíkurflugvelli