FRÉTTIR
MYNDIR
TENGLAR
Forsíða
Stofan
Náttúran
Verkefni
Fréttir
Myndir
Mávar í grút
18. júlí 2005
Um helgina barst lögreglu tilkynning um að grútarmengaður fugl væri í Sandgerðishöfn og uppi í byggð í nágrenni hafnarinnar. Lögreglumenn fóru á staðinn til að huga að þessu. Þar reyndist vera nokkuð magn sílamáfs ataður í grút. Lögreglan aflífaði fugla þá sem hún náði til eða rúmlega 30 fugla. Ljóst er að fiskveiðiskip hefur losað grút ekki langt fyrir utan Sandgerðishöfn og hefur fuglinn bersýnilega farið í grútinn í ætisleit. (úr dagbók lögreglunnar)
Ekki hefur borið á öðrum fuglum ötuðum í grút en vert er að hafa augun hjá sér því ekki er ólíklegt að aðrar fuglategundir eins og endur hafi líka lent í grútnum.
Til baka
Veðrið á Keflavíkurflugvelli