FRÉTTIR
MYNDIR
TENGLAR
Forsíða
Stofan
Náttúran
Verkefni
Fréttir
Myndir
Æðarannsóknir
6. júlí 2005
Eftir rúmlega 2ja mánaða dvöl og rannsóknir hefur Liliana D´Alba rannsakað um 140 hreiður. Hún fylgdist vel með um 200 hreiðrum í viðbót og þá aðalega til að skoða hvernig kvenfuglinn valdi sér hreiðrið, hvað er það sem skiptir máli fyrir fuglinn. Hefur nálægð við vatnið áhrif, eða skiptir máli hve margir fuglar eru í kring. Hvernig getur gott hreiður haft áhrif á uppvöxt ungana.
Liliana var einnig með nokkurs konar njósnaegg. Það eru tilbúin egg með þrennskonar mælitækjum í. Eitt mælir hitastigið, annað mælir hjartslátt(þannig er hægt að reikna út orku fuglsins sem fer í að liggja á hreiðrinu), og þriðja hefur málmplötu sem oftast er sett á annað foreldrið og þannig er hægt að reikna út hvort þeirra liggur meira á. En í þessari rannsókn skiptir það ekki máli því kvenfuglinn liggur bara á. Þessi njósnaegg eru tilraun og því miður þá gekk þetta ekki nógu vel með þau hér. Það er mikilvægt að fuglinn liggi beint á egginu til að mæla hjartslátt. Hinsvegar er íslenska kollan vel fiðruð á kviðnum, þótt hún reiti sig þá myndast ekki skallablettir á kvið sem er nauðsynlegt því tækið þarf að koma við skinnið til að fá sem áreiðanlegustu mælingu. Njósnaeggið má því ekkert færast til í hreiðrinu en kollan hreyfir öll egg til og frá, það er í hennar eðli. Njósnaeggin verða því betrumbætt fyrir næstu rannsókn.
Hitastig eggja var mælt til að reikna út hversu mikinn dún þarf í hvert hreiður. Stundum var dúni bætt í og stundum var hann tekinn úr öðru hreiðri. Notaðar voru 3 tegundir hreiðra eitt með mikinn dún (bætt í ), annað lítinn dún (tekið úr) og þriðja var ósnert. Öll voru þau svo borin saman við venjuleg hreiður. Tilgangurinn var að finna út hvort mikill dúnn í hreiðri skiptir máli.
Blóðsýni voru tekin af kvenfuglinum og hægðarsýni til að rannsaka stress hormóna fuglsins. Breytast hormónar fuglsins eftir mismunandi ólíku umhverfi.
Dvöl Liliönu fer að ljúka en við vonumst til að þessi rannsókn hafi tekist svo vel að við getum haldið áfram á svipaðri braut á næsta ári.
Til baka
Veðrið á Keflavíkurflugvelli