Gunnfálki og Kanadagæs
18. maí 2005

Af og til birtast flækingsfuglar á Íslandi og er Reykjanesskaginn einn þeirra staða þar sem algengt er að sjá slíka fugla. Dagana 14. og 15. maí síðastliðna var gunnfálki Falco subbuteo á sveimi við Hafurbjarnarstaði. Gunnfálkar eru afar sjaldgæfir hér á landi og mun þetta vera í tólfta sinn sem þessi tegund finnst hérlendis.

Hægt er að lesa meira um gunnfálkann á http://www.birdsofbritain.co.uk

Undanfarna daga hefur síðan kanadagæs haldið sig á Sandgerðistjörn. Kanadagæsir eru reglulegir flækingar á Íslandi og sjást gjarnan í fylgd með öðrum gæsum. Tilvalið er að nýta fuglaskoðunarskýlið við Sandgerðistjörn til að skoða kanadagæsina



Til baka
Veðrið á Keflavíkurflugvelli