FRÉTTIR
MYNDIR
TENGLAR
Forsíða
Stofan
Náttúran
Verkefni
Fréttir
Myndir
Sendlingarannsóknir á Rosmhvalanesi
18. maí 2005
Undanfarnar tvær vikur hafa sérfræðingar frá Náttúrustofu Reykjaness og RSPB í Skotlandi verið við rannsóknir á sendlingum á Rosmhvalanesi. Beinast rannsóknirnar aðallega að stofni sendlinga sem hefur vetursetu í NV- Evrópu og fer um Ísland á vorin til ókunnra varpstöðva sem líklega eru í Kanada. Rúmlega 250 sendlingar náðust að þessu sinni og voru þeir m.a. merktir með einkennandi lithringjum á fótum. Fuglarnir voru veiddir með fallbyssuneti á svæðinu frá Grindavík norður að Garðskaga. Vonast er til að fuglaskoðarar sjái sendlingana og geti lesið litasamsetningu fóthringjanna. Þessi stofn sendlinga virðist ótengdur íslenskum sendlingum sem eru m.a. stærri og virðast vera staðfuglar á Íslandi.
Til baka
Veðrið á Keflavíkurflugvelli