Blöðruselur í Sandgerði
28. apríl 2005
Særður blöðruselur fannst í fjöru við Sandgerði á miðvikudagsmorgun. Dýrið var horað og virtist annar hreifinn illa farinn. Ekki er vitað um kyn dýrsins en líklega var um ungt dýr að ræða. Blöðruselir kæpa ekki við Ísland en talið er að selir sem hér finnast komi frá Jan Mayen. Kæping hefst í byrjun apríl og þyngjast kóparnir um 6kg á dag fyrstu daganna.

Lögreglan aflífaði dýrið þar sem afar ólíklegt þótti að það myndi ná sér.

Til baka
Veðrið á Keflavíkurflugvelli