FRÉTTIR
MYNDIR
TENGLAR
Forsíða
Stofan
Náttúran
Verkefni
Fréttir
Myndir
Varpárangur æðarfugls
16. mars 2005
Í lok apríl kom hingað Liliana D´Alba doktorsnemi við Glasgow Háskóla og hélt hún áfram söfnun gagna um varp æðarfugls í landi Norðurkots. Þetta er annað árið hennar hér þar sem hún skoðar hreiðurgerð og varpárangur æðarfuglsins,og hvort hitastig og veðurfar hafi áhrif á uppkomu unganna. Fyrstu niðurstöður sýna greinilega að dúntekja hefur lítil sem engin áhrif á afkomu unganna og eru þetta mikilvægar upplýsingar fyrir seljendur æðardúns en hann er sem kunnugt seldur sem sjálfbær náttúruafurð. Seljendur dúnsænga í Austurríki hafa sýnt rannsóknunum töluverðan áhuga en þeir telja að niðurstöður sem þessar auðveldi þeim sölu á hágæðavöru á Japansmarkaði.
Til baka
Veðrið á Keflavíkurflugvelli