Merkingar á máfum
11. mars 2005
Verkefni Gunnars Þórs Hallgrímssonar er um samspil tófu og sílamáfs á Miðnesheiði. Sílmáfi hefur fjölgað gífurlega á Miðnesheiði síðan hann hóf varp þar árið 1958 og er talið að þar verpi nú um 36.000 pör.

Ýmsum kostnaðarsömum aðferðum er beitt til að halda fuglinum í skefjum sem eðlilega er enginn aufúsugestur í nágrenni flugvallarins. Engu að síður hefur máfi farið fjölgandi síðustu ár og má segja að magn máfa við Keflavíkurflugvöll sé algerlega óviðunandi og í raun hættuspil. Rannsóknir Páls Hersteinssonar við Líffræðideild Háskóla Íslands hafa gefið sterkar vísbendingar í þá veru að tófa geti haft veruleg áhrif á útbreiðslu máfs á Miðnesheiði og hefur hann haft forgöngu um verkefni sem fæst við að kanna hvort fjölga mætti refum á heiðinni til að fækka máfi. Fylgst verður með hvort tófur hafi áhrif á útbreiðslu og/eða á stofnstærð sílamáfa á Miðnesheiði. Jafnframt beinist hluti verkefnisins að því hvort tófur hafi áhrif á þéttleika mófugla á rannsóknarsvæðinu.

Til að unnt sé að meta hugsanleg áhrif tófu á sílamáfa þarf að kanna marga þætti í líffræði máfsins og tófunnar. Eittt af því sem þarf að kanna er útbreiðsla sílamáfsvarpsins á Miðnesheiði en jafnframt er þéttleki máfa innan varpsins mældur á um 30 reitum. Einnig verða ferðir tófunnar um Miðnesheiði kannaðar. Það má því segja að verkefnið miðið að því að auka flugöryggi með því að endurheimta fyrra náttúrufar og lykiltegund í vistfræði svæðisins.

Til baka
Veðrið á Keflavíkurflugvelli