FRÉTTIR
MYNDIR
TENGLAR
Forsíða
Stofan
Náttúran
Verkefni
Fréttir
Myndir
Þjóðgarður í sjó
7. janúar 2005
Sigríður Kristinsdóttir mastersnemi í Háskóla Íslands vinnur nú að verkefni sem hlotið hefur nafnið Þjóðgarður í Sjó.Þar mun hún leitast við að viða að sér heimildum og reyna að svara spurningum um t.d. hvort svæðin þar sem botndýralífið er sem fjölbreyttast myndi njóta góðs af verndun og friðun. Geta friðuð hafsvæði haft áhrif hvað varðar stærðaráhrif nýliðunar? Hvar eru mikilvægar jarðminjar neðansjávar, stafar þessum jarðminjum hætta af veiðum og myndi friðun hafa áhrif þar á? þessum spurningum ásamt mörgum fleirum ætlar Sigríður að velta fyrir sér. Leiðbeinendur hennar eru Jörundur Svavarsson, Sveinn Kári Valdimarsson og Guðrún Marteinsdóttir. Þetta verkefni hennar mun taka 2 ár.
Til baka
Veðrið á Keflavíkurflugvelli