Fuglamerkingar
12. október 2004
Það hefur gengið mikið á í fuglamerkingum og skoðunum. Nú nýverið voru nokkrir sílamávar veiddir og sendir út til Svíþjóðar til rannsókna. Í gærkveldi komu galvaskir menn, konur og börn og merktu um 20 sílamáva. Notast var við net til að veiða þá í og þeir lokkaðir með nýbökuðu brauði og frosnum fiski. Byssurnar sem skjóta fram netinu klikkuðu og af 4 byssum virkuðu bara 2. Það þurfti því að reyna aftur en fuglarnir voru eitthvað hvekktir svo þeir fengu frí fram til dagsins í dag.

Til baka
Veðrið á Keflavíkurflugvelli