Ljóshöfðar í Njarðvíkum
17. október 2008

Tveir ljóshöfðasteggir (Anas americana) hafa haldið til í hópi rauðhöfða (Anas penelope) í Njarðvíkum að undanförnu. Ljóshöfðar eru flækingsendur frá Ameríku og eru náskyldir rauðhöfðum sem eru Íslendingum vel kunnir - enda algengir varpfuglar. Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd þekkjast ljóshöfðasteggir á rauðbrúnum síðum auk þess að hafa ljóst höfuð með grænum taumi aftur frá augum og gula blesu. /-GÞH



Til baka
Veðrið á Keflavíkurflugvelli