Tveir flatnefir (Platalea leocorodia) hafa haldið til á Sandgerðisleiru frá því á föstudaginn (24. okt 2008). Fram að núliðnu hausti höfðu aðeins sést 5 flatnefir á Íslandi. Það hefur því komið fuglaskoðurum mjög á óvart að nú í haust hafa sést 6 flatnefir á 5 mismunandi stöðum hérlendis. Flatnefir eru útbreiddir og verpa frá suður Evrópu og norður Afríku, um Asíu, allt austur til Japans. /-GÞH