FRÉTTIR
MYNDIR
TENGLAR
Forsíða
Stofan
Náttúran
Verkefni
Fréttir
Myndir
Litmerkt tildra í Sandgerði
4. nóvember 2008
Tildra (
Arenaria interpres
) er norrænn vaðfugl og algengur fargestur á Reykjanesskaga. Þann 9. október sl. sást tildra í Sandgerði sem bar lithringi á fótum. Athugandinn náði að lesa samsetningu lithringjanna þannig að hægt var að kenna einstaklinginn. Í ljós kom að um er að ræða tildru sem var merkt sem fleygur ungi á Alert-eyju í Kanada þann 6. ágúst 2001. Alert-eyja er norðan við Ellesmere-eyju á heimskautasvæðum Kanada, á 82. breiddargráðu! Þessi tiltekna tildra virðist vera hrifin af Sandgerði því þetta mun vera í fjórða skiptið sem hún sést þar. Áður hafði hún sést á sama stað 4. mars 2005, 2. mars 2006 og 26. mars 2007. Þetta er því í fyrsta skiptið sem hún sést í Sandgerði að haustlagi og spennandi að sjá hvort hún eyði vetrinum hérlendis eða hvort hún noti Ísland eingöngu sem "stoppistöð" á ferðum sínum á milli varp- og vetrarstöðva.
/-GÞH
Til baka
Veðrið á Keflavíkurflugvelli