Lömunarveiki í fuglum við Eystrasalt
28. ágúst 2009

Lömunarveiki tengd skorti á þíamíni (B1 víamíni)

Frá árinu 2004 hefur NR unnið að rannsókn með Stokkhólmsháskóla um ástæður mikils dauða og lítillar frjósemi fugla við Eystrasaltið. Um nokkurra ára skeið hefur borið á lömuðum fuglum á þessu svæði og á varpsvæðum sumra tegunda, eins og t.d. silfurmáfs. Þar hafa fundist dauðir og deyjandi fuglar við hreiður. Uppsetning rannsóknarinnar gerði ráð fyrir því að Ísland væri viðmiðunarsvæði þar sem gengið var út frá því að íslenskir fuglar væru við góða heilsu. Nú hefur hluti þeirra gagna sem hefur verið aflað verið birt í einu stærsta vísindatímariti heims Proceedings of the National Academy of Sciences (PNAS). Helstu niðurstöður eru þær að náin tengsl eru á milli veikra fugla og lítillar frjósemi annars vegar og lágra gilda þíamíns á ákveðnum formum og ensíma tengdum þeim hins vegar. Ekki er vitað hvað veldur því að fram kemur skortur á þíamíni í dýrunum en talið er að efnaskiptavandræði valdi því að þau geti ekki nýtt sér þíamínið, fremur en að þíamínskortur sé í umhverfinu. Einnig kom í ljós að svo virðist sem sumir íslenskir fuglar nái ekki þeim gildum sem talið er að einkenna ættu heilbrigða fugla og gefur það vísbendingar um að ákveðin vandamál gætu verið uppsiglingu hérlendis. Vísbendingar eru um að þíamínskort í lífverum sé að finna víða um heim t.d. í N-Ameríku og Ástralíu. Mjög mikilvægt er að fylgja þessum rannsóknum eftir og beinast sjónir aðallega að því hvaða efni það eru sem valda því að fram kemur þíamínskortur og einnig hversu útbreitt vandamálið er m.t.t. dýrahópa og landsvæða. NR vinnur áfram að verkefninu og hefur meðal annars notið aðstoðar Náttúrustofu Austurlands.



Til baka
Veðrið á Keflavíkurflugvelli