FRÉTTIR
MYNDIR
TENGLAR
Forsíða
Stofan
Náttúran
Verkefni
Fréttir
Myndir
Nákuðungur (Nucella lapillus)
18. nóvember 2008
Nákuðungur
Nucella lapillus
Nákuðungur finnst í víða í gjót- og klettafjörum. Einkum heldur hann sig í grennd við krækling og hrúðurkarl en það er aðalfæða nákuðungsins. Algengt er að finna hann í allri fjörunni að sumarlagi en nákuðungurinn liggur í dvala yfir háveturinn. Nákuðungurinn verpir eggjum í keilulaga hylki sem þeir festa við kletta eða stórgrýti. Hylkin festa þeir á hart undirlag oft undir steinum eða í klettaskorum þar sem raki er.
Nákuðungurinn er rándýr, með tennta skráptungu sem hann notar til að rífa hold bráðar og getur hann borað gat á skeljar og náð þannig í fæðuna. (SK).
Til baka
Veðrið á Keflavíkurflugvelli