Beitukóngur Buccinum undatumLitur beitukóngs er breytilegur getur verið hvítur, gulur, brúnn eða jafnvel rauðleitur. Beitukóngur er algengur um allt Norður-Atlandshaf, allt frá Svalbarða og suður til Frakklands. Hann finnst allt í kringum Ísland, allt frá neðri hluta fjörunnar og niður á 1200 m dýpi. Þó er hann algengastur á innan við 50 m dýpi. Þegar beitukóngur hrygnir, fara eggin í gegnum egghulsturskirtil en þar myndast hjúpur um egginsvokallað egghulstur. Kvendýrið límir mörg egghulstur saman í klasa, á hart undirlag á botni. Þessir klasar geta verið að 30 cm í þvermál. Stundum hrygna fleiri en eitt kvendýr í sama klasa.