FRÉTTIR
MYNDIR
TENGLAR
Forsíða
Stofan
Náttúran
Verkefni
Fréttir
Myndir
Hraun og eldgígar
15. október 2004
Að minnsta kosti 12 hraun hafa runnið á Reykjanessskaga síðan land byggðist. Nýjasta er sennilega á 14. öld. Eftir að jökul leysti af skaganum fyrir um 12-15 þúsund árum hafa um 200 eldstöðvar á fjórum eldstöðvarkerum verið virkar á svæðinu og úr þeim runnið um 42 rúmkílómetrar af hrauni sem þekur yfir 1000 ferkílómetra landssvæði. Þar má finna helstu gerðir íslenskra eldstöðva eins og hraunskildir(dyngjur), gígaraðir, gígahópar og sprengigígir t.d. Grænavatn. Auk þess má sjá sigkatla t.d. Hvirfill og Kistufell.
Sjálfur Reykjanesfjallgarðurinn er afar merkilegur því hann hvílir á sjálfu virka gosbeltinu sem partur af hinum mikla Atlandshafshrygg sem liggur þvert yfir Ísland. Lítið er um stöðuvötn og læki á Reykjanesi en Kleifarvatn sem er mest allra vatna á Reykjanesskaganum er á sjálfu gosbeltinu. Það er ekki hægt að skoða þetta framhald af hinum stóra Atlandshafshrygg ofansjávar nema á Reykjanesskaganum. Hann er því einstakur en með duldar hættur. ( Jón Jónsson, Árbók Ferðafélagsins, 1984, bls.51-113) (Gunnar H.Hjálmarsson, Útivist 2.tbl. 1.árg 2002)
Til baka
Veðrið á Keflavíkurflugvelli