Reglugerð um skipulag og starfsemi Náttúrustofu Reykjaness í Sandgerði

1. gr.
Starfrækt skal Náttúrustofa Reykjaness í Sandgerði. Sandgerðisbær, Grindavíkurbær og önnur sveitarfélög í Reykjaneskjördæmi sem kunna að gerast aðilar að stofunni, eiga og reka stofuna með stuðningi ríkissjóðs.
Ríkissjóður greiðir laun forstöðumanns í fullu starfi. Framlag ríkissjóðs til stofnkostnaðar vegna húsnæðis- eða leigukostnaðar, eigi það við, innréttinga og bóka- og tækjakaupa getur numið allt að helmingi kostnaðar og fer eftir því sem ákveðið er á fjárlögum hverju sinni, enda liggi fyrir trygging um jafnhátt framlag frá heimaaðilum. Ríkissjóður er eigandi þess framlags sem hann leggur til stofnkostnaðar.

2. gr.
Auk framlags skv. 1. gr. Hefur stofan tekjur af útseldri vinnu og annarri gjafhæfri þjónustu. Renna þær óskiptar til stofunnar og hafa ekki áhrif á framlög ríkissjóðs og heimaaðila skv. 1. gr.

3. gr.
Þær eignir sem til stofnkostnaðar teljast skulu aðeins nýttar í þágu stofunnar nema fyrir liggji samþykki ráðuneytisins um annað.

4. gr.
Sjá=> Hlutverk

5. gr.
Heimilt er Náttúrustofu Reykjaness með sérstökum samningi að gerast aðili að sýningarsafni en fjárhagur hennar og safnsins skal vera aðskilinn.

6. gr.
Yfir Náttúrustofu Reykjaness skal starfa sérstök stjórn, skipuð þremur mönnum og þremur til vara. Eigendur í héraði tilnefna tvo en ráðherra einn og skal hann vera formaður. Sömu reglur gilda um varamenn. Skipunartími stjórna er milli reglulegra sveitarstjórnarkosninga. Hlutverk stjórnar er að hafa eftirlit með rekstri stofunnar, fjalla um og samþykkja fjárhagsáætlanir og fylgjast með fjárhag hennar og starfsemi.
Allur kostnaður vegna starfa stjórnarinnar greiðist af stofunni.

Veðrið á Keflavíkurflugvelli