FRÉTTIR
MYNDIR
TENGLAR
Forsíða
Stofan
Náttúran
Verkefni
Skýrslur
Fréttir
Myndir
Skolpmengun
16. mars 2005
Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja hefur haft forgöngu um vöktunarverkefni varðandi skolpmengun á Suðurnesjum og er Náttúrustofan þátttakandi í því. Um er að ræða 24 sýnatökustaði víðsvegar um Suðurnesin og er áætlað að sýni verði tekin á þriggja mánaða fresti. Með þessu gefst einstakt tækifæri til að fylgjast með skolpmengun á svæðinu og hægt verður að sjá hvernig hún breytist með tilliti til árstíma. Þorvaldur Örn Árnason náttúrurfræðikennari í Vogaskóla og formaður Umhverfisnefndar Vogahrepps tekur einnig þátt í verkefninu. Hann mun sjá alfarið um sýnatöku í landi Vogahrepps. Bergur Sigurðsson frá Heilbrigðiseftirlitinu mun sjá um sýnatöku í kringum Reykjanesbæ og Náttúrurstofan mun taka sýni í landi Garðs, Sandgerðis og Grindavíkur.
Til baka
Veðrið á Keflavíkurflugvelli