Mávaskoðanir og merkingar
21. febrúar 2005
Þessa síðustu daga höfum við verið að leita eftir styrkjum í ýmis verkefni. Haldið verður áfram í vor með bæða mávskoðanir og mávamerkingar. Það er stórt og mikið verk sem bíður okkar við að merkja og skoða mávinn. Það er nokkuð mikið um hann hér á slóðum og við fyrstu kannanir virðast vera tengsl á milli refa og máva. Gott væri að getað friðað refinn um tíma til að sjá hvernig mávastofninn kemur út. Mikið að mávum hafa sést nálægt flugvellinum á Leifstöð. Það bíður hættunni heim því margir fuglanna fara í hreyfla og geta orsakað stórslysi ef því er að skipta. Því er nauðsynlegt að reyna að halda fuglinum í skefjum en til þess er þörf á að kanna fjölda þeirrra. Við frumrannsóknir virðist fjöldi refa hafa áhrif á varp máva. Þar sem refagreni er þar hefur mávurinn flutt sig um set.
Í vor er ætlunin að merkja fuglinn.


Til baka
Veðrið á Keflavíkurflugvelli